Hvað er Shilajit?

Shilajit er ríkt af steinefnum, fúlvínsýru og öðrum lífrænum efnasamböndum og hefur verið notað til heilsueflingar í þúsundir ára. Samkvæmt Ayurveda fræðunum er Shilajit sagt efla orku fólks, bæta virkni heilans og veita almennt meiri vellíðan. Jafnframt er það talið auka kynorku og frjósemi beggja kynja enda er erfitt að finna efni í náttúrunni sem er jafn ríkt af bætiefnum.

Efnið er svart og leirkennt, það finnst í klettum Himalajafjalla í mikilli hæð og myndast á mörg hundruð árum við niðurbrot plantna undir miklum þrýstingi. 

Jiri Premium Himalayan Shilajit er sótt í 4–5000 m. hæð, hreinsað, sólþurrkað og pakkað. Með öflugu eftirliti og rannsóknum sem framkvæmdar eru í Nepal, Indlandi og á Íslandi, þar sem skimað er fyrir þungmálmum, bakteríum og öðrum óæskilegum efnum. Þannig tryggjum við ávallt bestu gæðin og 100% hreina vöru.

Vörunni er pakkað á íslandi í vottuðu matvinnslueldhúsi. Hver pakkning merkt með nákvæmu magni fúlvínsýru sem mælt er á rannsóknarstofu fyrir pökkun en magnið er breytilegt eftir uppskerum.